Taívan fordæmir hernaðaræfingar Kína

Ferðamenn í Taívan horfa á orrustuþyrlu kínverska hersins fljúga yfir …
Ferðamenn í Taívan horfa á orrustuþyrlu kínverska hersins fljúga yfir eyjuna. Yfirvöld víða um heim hafa fordæmt hernaðaræfingar Kína. AFP

Yfirvöld í Taívan hafa fordæmt Kína vegna hernaðaræfinga þeirra umhverfis eyjuna í kjölfar heimsóknar Nancy Pelosi, forseta fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, til Taívan. Kínverski herinn skaut fjölda flugskeyta í gær og í dag. Þá hefur Kína sent orrustuþotur og herskip.

Kína hyggst halda hernaðaræfingum áfram fram á miðjan sunnudag en yfirvöld þar í landi telja að æfingarnar séu nauðsynleg viðbrögð við heimsókn Pelosi. Yfirvöld í Bandaríkjunum segja hins vegar að Kína hafi kosið að bregðast við heimsókninni með þessum hætti.

Illi nágranninn

Su Tseng-chang, forsætisráðherra Taívan, hefur kallað eftir því að leitað verði leiða til að koma í veg fyrir að ástandið stigmagnist.

Kína hafði tilkynnt að Pelosi yrði beitt refsiaðgerðum vegna heimsókn hennar, en hún segir í samtali við blaðamenn í Tókíó í dag að Bandaríkin myndu ekki leyfa Kína að einangra Taívan.

Nancy Pelosi, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings.
Nancy Pelosi, forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert