Truss næsti forsætisráðherra Bretlands

Liz Truss bar sigur úr býtum í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins í Bretlandi og verður þar með næsti forsætisráðherra landsins.

Þetta var tilkynnt rétt í þessu. 

Atkvæðagreiðslunni lauk á föstudaginn þar sem kosið var á milli Truss, sem er utanríkisráðherra, og Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands. 

„Það er heiður að vera kjörin leiðtogi Íhaldsflokksins,“ sagði Truss, eftir að úrslitin voru tilkynnt.

Greidd voru 172.437 atkvæði og var kjörsókn 82,6%. Truss hlaut 81.326 atkvæði, eða um 57%, á móti 60.399 atkvæðum Sunak.

Liz Truss flytur ræðu eftir að úrslitin voru tilkynnt.
Liz Truss flytur ræðu eftir að úrslitin voru tilkynnt. AFP/Adrian Dennis

Bor­is John­son, sem hefur starfað sem for­sæt­is­ráðherra frá því hann sagði af sér embætti í byrj­un júlí, mun færa Elísa­betu Eng­lands­drottn­ingu form­legt upp­sagn­ar­bréf sitt á morgun.  

Truss verður þriðja konan til að gegna embætti forsætisráðherra í sögu Bretlands. 

Í ræðu sinni þakkaði Truss Boris Johnson fyrir að hafa staðið uppi í hárinu á Vladimír Pútín Rússlandsforseta, klárað Brexit, komið bóluefni við kórónuveirunni til almennings og fyrir að „rústa Jeremy Corbyn“ í kosningum árið 2019.

Hún sagðist ætla að standa við gefin loforð í kosningabaráttunni, meðal annars að lækka skatta og efla breskan efnahag.

Truss kvaðst jafnframt ætla að „standa sig í stykkinu“ vegna hækkandi orkuverðs í landinu og framboðs af orku.  

Liz Truss og Rishi Sunak á fundi Íhaldsflokksins þar sem …
Liz Truss og Rishi Sunak á fundi Íhaldsflokksins þar sem úrslitin voru tilkynnt. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert