„Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna“

Sanna Marín forsætisráðherra Finna með forsætisráðherra Ástralíu, Anthony Albanese í …
Sanna Marín forsætisráðherra Finna með forsætisráðherra Ástralíu, Anthony Albanese í dag. AFP/Saeed Khan

Sanna Marin, forsætisráðherra Finna, sagði í dag að Evrópa væri ekki nógu „öflug“ til að geta mætt innrás Rússa í Úkraínu og að álfan hefði þurft að reiða sig á stuðning Bandaríkjanna. Þetta kemur fram hjá breska ríkissjónvarpinu, BBC, í dag.

Sanna Marin var í opinberri heimsókn til Ástralíu og hélt þar ræðu hjá Lowy Institute hugveitunni í Sydney. Í ræðunni sagði hún að nauðsynlegt væri að styrkja varnir Evrópu. „Ég verð að vera óþægilega hreinskilin við ykkur. Evrópa er ekki nógu sterk núna. Við værum í vandræðum án Bandaríkjanna.“

Framlag annarra langtum minna en Bandaríkjanna

Þegar litið er á stuðning við Úkraínu í stríðinu kemur í ljós að Sanna Marin hefur ýmislegt til síns máls. Frá upphafi innrásar Rússa í Úkraínu hafa Bandaríkin stutt Úkraínu með beinum framlögum til stríðsrekstursins með fjárframlögum upp á 18,6 milljarða bandaríkjadala. Á eftir þeim kemur Evrópusambandið og síðan Bretland en framlög þeirra eru eins og dropi í hafið í samanburði við Bandaríkin.

Trump gagnrýndi NATO fyrir lág framlög 

Sanna Marín sagði að það þyrfti að styrkja varnir Evrópu umtalsvert. Þegar Donald Trump var forseti Bandaríkjanna gagnrýndi hann iðulega Evrópulöndin í Atlantshafsbandalaginu fyrir að verja ekki meira fé til varnarmála. Árið 2020 fór u.þ.b. 3,7% landsframleiðslu Bandaríkjanna til varnarmála, en á sama tíma voru framlög Evrópulandanna í NATO og Kanada í málaflokkinn að jafnaði  1,77% af landsframleiðslu.

Heita hærri framlögum

Frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar hafa mörg Evrópusambandslönd og lönd Atlantshafsbandalagsins heitið því að auka framlög sín til varnarmála.

Formaður Lowy Institute hugveitunnar var hæstánægður með heimsókn finnska forsætisráðherrans og þakkaði henni á Twitter fyrir magnaða ræðu og góða viðkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert