Rússneskum karlmanni hefur verið vísað úr Indónesíu eftir að hafa afklæðst á toppi heilags fjalls á eyjunni Balí.
BBC greinir frá því að mynd af manninum með nærbuxurnar á hælunum hafi farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla í síðustu viku.
Maðurinn, sem kallar sig Yuri, hefur beðist afsökunar á athæfinu en samt sem áður er honum bannað að koma aftur til Indónesíu í að minnsta kosti sex mánuði.
Yfirvöld á Balí hafa að undanförnu aukið eftirlit með ferðamönnum sem sýna ósæmilega hegðun á eyjunni.
Myndin af Yuri var tekinn á Mount Agung, sem er hæsta fjall Balí. Hindúar á eyjunni trúa því að guðirnir búi á fjallinu.
Fulltrúi lögreglunnar á eyjunni sagði Yuri ekki bera neina virðingu fyrir menningu íbúa og að hegðun hans sé óafsakanleg.
Yuri birti myndskeið á Instagram þar sem hann baðst afsökunar og sagði atvikið undirstrika fáfræði hans.
Hann tók síðar þátt í trúarathöfn þar sem að fjallið var „hreinsað“.