Þrátt fyrir að dregið hafi úr jarðskjálftavirkni við Grímsey er henni ekki endilega að ljúka. Jarðfræðingar hjá Veðurstofu Íslands segja rétt að búast við að önnur stór hrina komi í kjölfarið og færist jafnvel til suðausturs.
Virknin í dag hefur verið með svipuðum hætti í dag og í gær en þó farið hratt minnkandi síðan í gærkvöldi. virknin hleypur á milli tveggja þyrpinga, um 15 km austur af, og um 30 km SA af Grímsey.