Listamenn styrkja Hraunavini

Fjöldi myndlistarmanna hafa gefið verk sín á sýningu sem verður boðin upp til styrktar 9 manns sem hafa verið ákærðir fyrir mótmæli í Gálgahrauni í október. Ragnar Kjartansson og Eggert Pétursson eru á meðal þeirra sem hafa gefið verk sem mörg eru vitnisburður um atburðina en sýningin opnar í Gallerí Ófeigs á Skólavörðustíg í dag.

Á þriðjudag verður mál nímenninga tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í Hafnarfirði en þeir sjá fram á töluverð útgjöld vegna málarekstursins og uppboðið verður haldið eftir tvær vikur.

mbl.is skoðaði sýninguna í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert