Jón Steinar veitti ráðherra ráðgjöf

Jón Steinar Gunnlaugsson.
Jón Steinar Gunnlaugsson. Morgunblaðið/Kristinn

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, veitti Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra lögfræðilega ráðgjöf vegna lekamálsins svonefnda. Þetta staðfestir hann í yfirlýsingu vegna bréfs umboðsmanns Alþingis til innanríkisráðherra sem birt var í dag.

Yfirlýsing Jóns Steinars er eftirfarandi:

„Í bréfi sem umboðsmaður Alþingis sendi innanríkisráðherra í gær og hefur verið birt opinberlega, kemur fram frásögn Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra af samtali við mig í tengslum við svarbréf ráðherrans til umboðsmanns 1. ágúst s.l.

Af þessu tilefni skal staðfest að á þessum tíma veitti ég ráðherranum lögfræðilega ráðgjöf vegna málsins, meðal annars í tengslum við svar hennar til umboðsmannsins. Í umræddu símtali bar ég undir lögreglustjóra lýsingu ráðherra á þeim samskiptum hennar við hann sem fjallað var um í bréfinu. Las ég fyrir hann texta bréfsins, þar sem að þessu var vikið, og kvaðst hann engar athugasemdir gera við lýsinguna. Í bréfi ráðherrans sagði meðal annars svo:

„Ég sem og allir starfsmenn ráðuneytisins höfum þrátt fyrir þetta lagt okkur fram um að verða við öllum óskum lögreglu um gögn og upplýsingar, þó að ljóst sé að þessar óskir hafi í ákveðnum tilvikum verið mjög víðtækar. Þannig hefur engri rannsóknarbeiðni lögreglunnar verið hafnað og hefur henni meðal annars verið heimilað að skoða farsímanotkun einstakra starfsmanna, sem og tölvupóst, borðsímanotkun og aðgangskort allra starfsmanna og var ég þar ekki undanskilin. Þá hefur lögreglunni verið heimilaður aðgangur að málaskrá ráðuneytisins, sem inniheldur þúsundir einstaklingsmála.

[...]

Rétt er að taka fram að í samtölum okkar hef ég innt lögreglustjóra eftir því hvort honum þætti með einhverjum hætti óviðeigandi eða óþægilegt að ég ræddi við hann um framangreind atriði eða hvort hann teldi samtöl okkar til þess fallin að hamla störfum hans. Kom fram af hans hálfu að svo væri ekki enda var honum ljóst að öll viðleitni mín í málinu laut að því að greiða fyrir framgangi rannsóknarinnar.  Að auki hefur sú lögfræðilega ráðgjöf sem ég hef fengið innan sem utan ráðuneytis verið á þá lund að samskipti mín við lögreglustjóra, líkt og þeim er lýst hér að ofan, væru mikilvæg til að greiða fyrir framkvæmd rannsóknarinnar.“

Það eru nauðsynleg og sjálfsögð vinnubrögð, þegar annar aðili í samskiptum tveggja lýsir efni þeirra, að bera lýsinguna undir hinn. Lögreglustjórinn vissi af hvaða tilefni þessi lýsing var borin undir hann og staðfesti hana án fyrirvara.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert