Komst lífs af úr flakinu

Sjúkraflugvél Mýflugs flutti Arngrím frá Akureyri til Reykjavíkur seint í …
Sjúkraflugvél Mýflugs flutti Arngrím frá Akureyri til Reykjavíkur seint í gærkvöldi.

Maður lést og annar slasaðist þegar flugvél fórst í Barkárdal, sem liggur inn af Hörgárdal á Tröllaskaga, skammt vestan við Akureyri í gær.

Sá sem komst lífs af er Arngrímur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri flugfélagsins Atlanta og flugstjóri. Maðurinn sem lést er erlendur en ekki er hægt að gefa upp nafn hans að svo stöddu. Var hann látinn þegar flugvélin fannst.

Lögðu mennirnir tveir af stað frá Akureyri klukkan tvö eftir hádegi í gær og var lending flugvélarinnar áætluð á Keflavíkurflugvelli klukkan 16.20. Samhæfingarstöð ríkislögreglustjóra var svo ræst klukkan 17.06 eftir að ljóst varð að flugvélin hafði ekki skilað sér til Keflavíkur.

Spurðu bændur og ferðalanga

Í kjölfarið hófst umfangsmikil leit að vélinni þar sem lögregla, björgunarsveitir og Landhelgisgæslan lögðust á eitt. Allar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Norðurlandi, Vesturlandi og Suðurlandi voru kallaðar út, en alls var um að ræða 43 sveitir.

Við leitina voru notaðar bifreiðir, jeppar og fjórhjól auk þess sem menn fóru fótgangandi um leitarsvæðin. Skimuð voru þau svæði þar sem líklegast þótti að flugvélina mætti finna.

Þyrla Landhelgisgæslunnar fann vélina um klukkan 20.30 innarlega í Barkárdal við Gíslahnúk en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var flak vélarinnar illa farið þegar það fannst.

Erfitt er að komast að flakinu og er það aðeins aðgengilegt með hjálp þyrlu. Sigu stýrimaður og læknir úr þyrlu Landhelgisgæslunnar að flakinu til að komast að mönnunum.

Arngrímur var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Akureyrar og þaðan með sjúkraflugvél til Reykjavíkur. Ekki fengust upplýsingar um líðan hans í gærkvöldi.

Vanar víðfeðmum leitum

Leitin gekk hratt og örugglega fyrir sig að sögn Jónasar Guðmundssonar, verkefnastjóra Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

„Við skiptum niður á leitarsvæði og það gekk hratt og vel fyrir sveitirnar að sækja út á svæðin,“ segir Jónas. Hann bætir við að björgunarsveitir Landsbjargar hafi áður tekið þátt í álíka víðfeðmum leitum undanfarin ár og að meðlimir björgunarsveitanna séu vanir álaginu.

Lögðu áherslu á Tröllaskaga

„Þetta var fjölmennt og stórt viðbragð strax í upphafi, enda ástæða til. Lögð var áhersla á svæðið þar sem vélin fannst að lokum vegna þess að veðrið var þess eðlis á þeim slóðum. Það var því talin ástæða til að leggja ákveðinn þunga á það en jafnframt var leitað á öðrum svæðum.“

Flugvélin er af gerðinni De Havilland Canada DHC-2 Beaver Mk1 og getur verið útbúin til að lenda á vatni jafnt sem landi. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var vélin lengi í eigu kanadíska hersins en vélarnar þykja jafnan sterkar og áreiðanlegar.

Geirþrúður Alfreðsdóttir, formaður rannsóknarnefndar samgönguslysa, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að rannsóknarstjóri væri á leið á vettvang. „Rannsókn á slysinu hefst um leið og hann kemur á staðinn,“ segir hún.

Flugvélin sem fórst. Hún er af gerðinni De Havilland Canada …
Flugvélin sem fórst. Hún er af gerðinni De Havilland Canada DHC-2 Beaver Mk1
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert