Óska eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi

Karlmaður hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 31. október vegna gruns …
Karlmaður hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 31. október vegna gruns um íkveikju og manndráp. mbl.is/Eggert

Héraðssaksóknari hefur óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir karl­manni sem ákærður er fyr­ir mann­dráp á Sel­fossi í október 2018. Gæsluvarðhald yfir manninum á að renna út í dag. Úrskurður Landsréttar um fjögurra vikna gæsluvarðhald liggur fyrir eftir hádegi í dag. 

„Við erum að bíða eftir síðasta matinu og það ætti að koma í dag eða á morgun. Þegar það er komið verður ákveðin dagsetning á aðalmeðferð,“ segir Kolbrún Benediktsdóttir héraðssaksóknari.

Spurð hvort hún telji að aðalmeðferð í málinu verði innan fjögurra vikna telur hún það líklegt því alltaf er reynt að flýta málum þegar menn sitja í gæsluvarðhaldi. Hún getur þó ekki fullyrt um það þar sem það er í höndum dómara.  

Gef­in var út ákæra í mál­inu í lok janú­ar og sam­kvæmt henni er mann­in­um gefin að sök brenna og mann­dráp með því að hafa 31. októ­ber í fyrra lagt eld að pappa­kassa og gard­ín­um í stofu á neðri hæð íbúðar­húss og valdið þannig elds­voða sem hafði í för með sér al­manna­hættu, vit­andi af karl­manni og konu sem voru gest­kom­andi í svefn­her­bergi á efri hæð húss­ins er eld­ur­inn magnaðist upp. Hafði eld­ur­inn breiðst út um húsið þegar slökkvistarf hófst.

Af­leiðing­ar þess voru að parið lést af völd­um kol­mónoxíðeitr­un­ar vegna inn­önd­un­ar á reyk og húsið gjör­eyðilagðist. Í ákæru seg­ir enn frem­ur að ákærði hafi enga til­raun gert til að aðvara fólkið um eld­inn eða koma því til bjarg­ar áður en hann yf­ir­gaf húsið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert