Samdrætti mætt með lægri afkomumarkmiðum

Í tilkynningu segir að endurskoðuð stefna sé í samræmi við …
Í tilkynningu segir að endurskoðuð stefna sé í samræmi við tölusettar fjármálareglur laga um opinber fjármál. mbl.is/Golli

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um endurskoðaða fjármálastefnu fyrir árin 2018 til 2022. Tillagan felur í sér að dregið verði úr áformuðum afgangi á heildarafkomu hins opinbera í samræmi við breyttar efnahagshorfur sem fram koma í nýjum hagspám og fela í sér verulega röskun á forsendum fyrir gildandi stefnu. 

Gæti versnað um 35 milljarða án mótvægisaðgerða

Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að með breyttum horfum megi  gera ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs dragist umtalsvert saman og gæti afkoman versnað um allt að 35 milljarða króna bæði árið 2019 og 2020 án allra mótvægisaðgerða. Ríkisstjórnin mun því leggja til við fjárlaganefnd að gerðar verði breytingar á fjármálaáætlun sem fela í sér ráðstafanir sem tryggja hallalausan ríkisrekstur.

Gildandi fjármálastefna gerir ráð fyrir 1,4% afgangi á heildarjöfnuði hins opinbera árið 2018 og að jafnaði 1% afgangi á árunum 2019-2022. Í tillögu að endurskoðaðri stefnu er gert ráð fyrir breyttum afkomuhorfum frá og með árinu 2019 en þó þannig að heildarjöfnuður verði jákvæður á gildistíma stefnunnar.

Umbætur í hagkerfinu, sem stjórnvöld hafa staðið fyrir á undanförnum árum, hafa gert það vel í stakk búið til að mæta tímabundinni ágjöf. Í því samhengi má nefna endurreisn fjármálakerfis á heilbrigðum grunni, að tollar og vörugjöld hafa verið felld niður, auk þess sem tryggingagjald hefur verið lækkað. Þá ber að nefna umfangsmiklar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir farsælli lausn kjarasamninga.“

Í tilkynningu segir að endurskoðuð stefna sé í samræmi við tölusettar fjármálareglur laga um opinber fjármál sem þar eru settar sem skilyrði fyrir bæði fjármálastefnu og fjármálaáætlun. Hvorki ætti að koma til þess að afkoma verði lakari en 2,5% af VLF á einu ári né að heildarjöfnuður yfir fimm ára tímabil verði neikvæður. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert