Skólahald á Suðurlandi

Skólahald fellur niður á einhverjum stöðum á Suðurlandi.
Skólahald fellur niður á einhverjum stöðum á Suðurlandi.

Skólahald fellur niður í grunn- og leikskólum Bláskógabyggðar á Laugarvatni og í Reykholti í dag, miðvikudag.

Vegna veðurs verður enginn skólaakstur í dag en skólahald við Sunnulækjarskóla verður að mestu með eðlilegum hætti að öðru leyti.

Skólaakstur við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri fellur niður í dag vegna veðurs. Skólinn verður opnaður kl. 7:30 en reynt verður að halda uppi kennslu samkvæmt stundaskrá. Mælst er til þess að foreldrar/forráðamenn meti hvort þeir geti ekið börnum sínum til og frá skóla út frá aðstæðum.

Skólabílstjórar við Hvolsskóla halda kyrru fyrir í dag vegna veðurs. Vegurinn í austur frá Hvolsvelli er lokaður en einnig er hált og rok annars staðar í umdæminu, samkvæmt upplýsingum frá skólanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert