Greinilegt að landris er enn í gangi

Frá mælingum í dag.
Frá mælingum í dag. Ljósmynd/Veðurstofa Íslands

Ný gögn sýna áframhaldandi landris á svæðinu vestan við Þorbjörn. Erfitt er að túlka breytingar út frá einstaka mælipunktum, en með því að skoða meðaltal þéttari mælinga, sem nú berast í hús, er greinilegt að landrisið er enn í gangi.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar.

Þar segir að þar sem um langtímaatburð sé að ræða þurfi að fylgjast vel með svæðinu og mælingunum þar til lengri tíma, til að átta sig betur á heildarferli jarðhræringanna.

Sérfræðingar Veðurstofunnar hafa í dag unnið að gasmælingum (SO2) á svæðinu umhverfis Þorbjörn í samvinnu við starfsmenn HS-orku.

Þær mælingar gefa engar vísbendingar um að kvika sé komin nálægt yfirborði. Það styðja einnig vatnssýni sem HS-orka tók, en slíkt er gert tvisvar í viku.

Í dag kl. 15:51 varð skjálfti af stærð M2,7 um 2 km NNV af Grindavík. Tilkynningar hafa borist að um að íbúar í Grindavík hafi fundið skjálftann. Snemma í morgun mældust tveir skjálftar sem fundust einnig vel í Grindavík; kl. 04:31 þegar skjálfti af stærð M3,5 mældist og aftur kl. 04:59, þegar skjálfti M3,2 mældist. Búast má við áframhaldandi skjálftavirkni á svæðinu og að áfram finnist stærstu skjálftahrinurnar í grennd við Grindavík.

Líklegasta skýring þessarar virkni er kvikuinnskot á 3-5 km dýpi rétt vestan við Þorbjörn. Algengast er að slíkri virkni ljúki án eldsumbrota.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert