„Ruddaleg framkoma“

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Starfsgreinasamband Íslands mótmælir harðlega boðuðum uppsögnum á hjúkrunarheimilum í Fjarðabyggð og Vestmannaeyjabæ. Það segir að það sé aumur fyrirsláttur hjá ríkinu að það sé nauðsynlegt vegna yfirfærslu rekstrarins frá sveitarfélögum til ríkisins og hrein svik á því sem stéttarfélögum starfsmanna hefur verið gefið til kynna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SGS.

„Það eru algerlega forkastanleg vinnubrögð hjá Heilbrigðisráðuneytinu að krefjast þess að allt að 150 starfsmönnum verði sagt upp, sem eru að langmestu leyti konur í láglaunastörfum, að því að virðist með það að markmiði að ráða þær aftur til starfa undir öðrum kjarasamningi og á lægri kjörum.

Á landinu er atvinnuleysi í sögulegu hámarki og koma þessar fyrirhuguðu uppsagnir í framhaldi af öðrum uppsögnum á Heilbrigðisstofnunum á svæðinu sem er grímulaus aðför að láglauna kvennastéttum.

Þessi ruddalega framkoma er ótrúlegar kveðjur til þessa fólksins sem hefur unnið sín mikilvægu störf undir miklu álagi undanfarin misseri.

SGS krefst þess að hætt verði uppsagnirnar og málið leyst þannig að starfsfólkið haldi vinnu sinni og kjörum,“ segir enn fremur. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert