Búast við að losa þurfi óhreinsað skólp í sjó

Framkvæmdir í skólpdælustöðinni Faxaskjóli. Mynd úr safni.
Framkvæmdir í skólpdælustöðinni Faxaskjóli. Mynd úr safni. mbl.is/Golli

Veitur munu í sumar hefja framkvæmdir við nokkuð umfangsmikla endurnýjun búnaðar í dælu- og hreinsistöðvum fráveitu á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið stendur yfir í ríflega ár og á þeim tíma verða tímabundnar rekstrartruflanir í stöðvunum og búast má við að í einhverjum tilvikum þurfi að losa óhreinsað skólp í sjó á meðan á þeim stendur.

Frá þessu greina Veitur í tilkynningu.

Tekið er fram að framkvæmdirnar felist í endurnýjun vélbúnaðar í hreinsistöðvum við Ánanaust og Klettagarða og í dælustöðvum við Ingólfsstræti, Laugalæk og Faxaskjól. Gert sé ráð fyrir að þeim ljúki haustið 2022.

„Vandað verður til alls undirbúnings þessara framkvæmda svo lágmarka megi sem kostur er þann tíma er stöðva þarf starfsemi dælu- eða hreinsistöðvar. Neyðarútrásir og yfirföll eru við allar stöðvarnar og má búast við tímabundinni mengun við útrásir á meðan losun er virk,“ segir í tilkynningunni.

„Veitur munu greina nánar frá einstaka framkvæmdum og tilkynna hverja fyrir sig. Á meðan slíkt ástand varir verður fólki bent á að fara ekki í fjöru eða í sjó í nágrenni þeirrar stöðvar sem er í rekstrarstöðvun.“

Fylgst með fjörum

Í tilkynningunni er fólk einnig minnt á að klósett eru ekki ruslafötur og að allt það sem hent sé í salerni fari í sjó ef dælu- og hreinsistöðvar eru ekki virkar.

„Sjórinn hreinsar lífrænu efnin hratt og vel og slík mengun varir í skamman tíma. Rusl, eins og blautklútar, tannþráður, eyrnapinnar, smokkar og dömubindi, svo fátt eitt sé nefnt, er verra viðureignar og skilar sér á endanum í fjörur sem margar eru nýttar til útivistar.

Veitur hafa undanfarin ár látið fylgjast með fjörum í Reykjavík og ef rusl hefur borist í þær er það hreinsað. Svo verður áfram á meðan á þessu verkefni stendur.“

Fylgjast megi með stöðu á neyðarlúgum í fráveitusjá á www.veitur.is. Einnig má finna upplýsingar um einstaka framkvæmdir á vef Veitna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert