Coolbet telur Áslaugu líklegri

Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Bæði sækjast þau …
Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Bæði sækjast þau eftir að leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Samsett mynd

Stuðlarnir hjá veðbankanum Coolbet í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík eru Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur í hag. Hún etur kappi við Guðlaug Þór Þórðarson, núverandi oddvita í Reykjavík. 

Veðmálið var sett í loftið í hádeginu í gær og voru stuðlarnir þá nokkuð jafnir, lítillega Áslaugu í hag. 

Stuðlarnir í hádeginu í gær.
Stuðlarnir í hádeginu í gær. Skjáskot

Í dag hafa stuðlarnir á sigur Áslaugar lækkað og Guðlaugs hækkað. Coolbet telur því líklegra að Áslaug muni bera sigur úr býtum í einvíginu. 

Stuðlar á sigur Áslaugar hafa lækkað frá því í gær.
Stuðlar á sigur Áslaugar hafa lækkað frá því í gær. Skjáskot
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert