Maður á þrítugsaldri með Covid lést á Landspítala

32 einstaklingar liggja nú á Landspítalanum með Covid-19
32 einstaklingar liggja nú á Landspítalanum með Covid-19 mbl.is

Karlmaður á þrítugsaldri, smitaður af Covid-19, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gær.

32 sjúklingar liggja nú á Landspítala með Covid-19. Tveir eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum.

8.188 sjúklingar eru undir eftirliti hjá Covid-göngudeild spítalans, þar af 2.579 börn.   

Covid sýktir starfsmenn Landspítala í einangrun eru 248.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert