Ökumenn ekki negldir í þessari viku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir ekki verði farið í að sekta ökumenn á nagladekkjum í þessari viku. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

„Vegna fyrirspurna um sektir vegna aksturs á nagladekkjum á höfuðborgarsvæðinu er því til að svara að ekki verður farið í að sekta ökumenn af þeim sökum í þessari viku. Horft er til langtíma veðurspár og þess að suðvesturhornið er eitt atvinnusvæði, auk annríkis á dekkjaverkstæðum. Staðan verður endurmetin í næstu viku,“ segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert