Andlát: Karitas H. Gunnarsdóttir

Karitas H. Gunnarsdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
Karitas H. Gunnarsdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu.

Karitas H. Gunnarsdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, er látin 62 ára að aldri. Karitas lét af störfum í ráðuneytinu fyrr á þessu ári en hún var í hópi reyndustu starfsmanna stjórnarráðsins.

Karitas var lögfræðingur frá Háskóla Íslands og lauk framhaldsnámi í höfundarrétti í Kaupmannahöfn í Danmörku. Hún starfaði við fjölmiðla áður en hún hóf störf í umhverfisráðuneytinu árið 1993. Hún flutti sig yfir í mennta- og menningarmálaráðuneytið árið 1995 þar sem hún var staðgengill ráðuneytisstjóra undanfarin tólf ár.

Karitas var gift Kjartani Ólafssyni, útflytjanda sjávarafurða. Sonur Karitasar er Gaukur Jörundsson, fæddur 1988, og sonur Kjartans er Guðmar Valþór, fæddur 1982.

Karitas var fædd í Reykjavík 27. júní árið 1960. Faðir hennar var leikarinn Gunnar Eyjólfsson, fæddur 1926, látinn 2016. Móðir hennar er Guðríður Katrín Arason, fædd 1926. Systir hennar er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður og formaður Viðreisnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert