Samfylkingin ekki mælst með meira fylgi í 14 ár

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, leiðir flokkinn inn í nýtt vinsældarskeið.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, leiðir flokkinn inn í nýtt vinsældarskeið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samfylkingin ber höfuð og herðar yfir aðra flokka í nýjustu könnun Gallup og mælist með 30,1% fylgi. Er þetta fyrsta Gallup-könnunin í fjórtán ár þar sem flokkurinn mælist með yfir 30% fylgi. Ríkisútvarpið greinir frá. 

Í könnuninni sjást greinilega að tveir turnar hafa myndast. Einn á vinstri-ás og einn á hægri-ás en Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 20,4% fylgi, sem er um fjórum prósentustigum minna en flokkurinn hlaut í kosningum árið 2021.

Fylgi VG og Framsóknar helmingast

Enginn annar flokkur mælist með yfir 10 prósentustiga fylgi en Píratar mælast með 9,6%, Miðflokkurinn 8,6% og Framsókn og Viðreisn með um 8% fylgi.

Flokkur fólksins og Vinstri-grænir mælast hvor um sig með 5,7% fylgi.

Fylgi Vinstri-grænna og Framsóknar hefur helmingast frá kosningunum árið 2021, ef marka má könnunina. Á sama tíma hefur fylgi Miðflokksins aukist verulega en flokkurinn hlaut 5,5% í síðustu kosningum.

Sósíalistar myndu sem fyrr ekki ná manni á þing en þeir mælast með 3,9% fylgi.

Stuðningur við ríkisstjórnina mælist um 35%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert