Nærri 12 þúsund hótelherbergi

Edition-hótelið opnaði árið 2021.
Edition-hótelið opnaði árið 2021. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls voru 11.727 hótelherbergi skráð á landinu í júní og hafa þau aldrei verið fleiri. Þau voru á samtals 170 hótelum víða um landið en þegar mest var var 171 hótel á landinu í september 2019.

Þetta kemur fram í gögnum Hagstofu Íslands en í Morgunblaðinu í dag er fjallað um þróunina frá ársbyrjun 2015.

Alls voru ríflega sex þúsund hótelherbergi í ársbyrjun 2015 en fjöldinn nálgast nú 12 þúsund.

Þar af eru nú tæplega 5.500 hótelherbergi á höfuðborgarsvæðinu á alls 55 hótelum. Framboðið á gistiþjónustu dróst verulega saman í farsóttinni 2020-2021. Lokahönd var lögð á nokkur hótel 2019 en áhrifa af falli WOW air gætti þá í ferðaþjónustu. 

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert