Seltjarnarnesbær vill selja Safnatröð 1

Seltjarnarnes hefur ákveðið að selja húseignina og nýta andvirðið til …
Seltjarnarnes hefur ákveðið að selja húseignina og nýta andvirðið til innviðauppbyggingar. mbl.is/​Hari

Seltjarnarnesbær hefur ákveðið að selja fasteignina Safnatröð 1 þar í bæ, en í húsnæðinu er rekið hjúkrunarheimilið Seltjörn og þar er einnig þjónustuhluti fyrir aldraða Seltirninga. Húseignin er í langtímaleigu opinberra aðila.

Óskað er eftir skuldbindandi tilboðum í eignina og skilyrt er að tilboðsgjafi sé sérhæfður í rekstri fasteigna.

Fasteignin er auglýst til sölu í Morgunblaðinu í dag.

Lokið var við byggingu eignarinnar fyrri hluta ársins 2019. Í mars það ár hóf hjúkrunarheimilið Seltjörn starfsemi í eigninni.

„Við erum með fjármuni bundna í þessu húsi sem við þurfum að nota í annað. Við þurfum að klára okkar innviðauppbyggingu hér í bænum og erum einnig að fara að byggja leikskóla og þurfum því að losa um fjármuni,“ segir Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar í samtali við Morgunblaðið spurður um ástæður þess að eignin er sett á sölu.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert