Kvika á 800 metra dýpi eða nær

Sundhnúkagígaröðin liggur í suð-suðvestur að Grindavík.
Sundhnúkagígaröðin liggur í suð-suðvestur að Grindavík. Ljósmynd/Siggi Anton

Kvika er grynnst á 800 metra dýpi eða jafnvel nær. Þetta sýn ný líkön Veðurstofu Íslands sem unnin voru út frá gervitunglamyndum og GPS-mælingum. Gögnin eru 12 klukkustunda gömul og því gæti kvikan því verið nær. 

Veðurstofa Íslands sendi frá sér tilkynningu þess efnis. 

Líkönin sýna 15 km langan kvikugang sem liggur rétt norðvestan Grindavíkur. Vegna mikillar spennulosunar á svæðinu er ekki hægt að gera ráð fyrir að gosórói mælist áður en eldgos hefst. 

Auknar líkur á að kvika komi upp á hafsbotni

Gangurinn nær frá Kálffellsheiði í norðri og liggur rétt vestan Grindavíkur og í sjó fram í suðvestur stefnu.

Út frá þessu má álykta að verulegar líkur eru á að kvika nái að brjóta sér leið til yfirborðs. Auknar líkur eru einnig á að kvika geti komið upp á hafsbotni segir í tilkynningunni. 

Dregið hefur mikið úr jarðskjálftavirkni eftir hádegi í dag. Talið er að megin ástæða þess sé mikil spennulosun á svæðinu vegna jarðskjálfta gærdagsins og aflögunar vegna kvikugangsins. Vegna spennulosunarinnar er líklegt að kvikan eigi greiða leið til yfirborðs og því er ekki hægt að gera ráð fyrir því að gosórói sjáist á mælum áður en eldgos hefst.

Búa sig undir möguleika á sprengigosi

Veðurstofan hefur sent tilmæli til almannavarna að líkur á eldgosi hafi aukist frá því í morgun og eldgos geti hafist hvenær sem er á næstu dögum.

Líkön benda einnig til þess að kvika geti komið upp á syðri enda kvikugangsins rétt utan Grindavíkur. Líkur á eldgosi á hafsbotni hafa einnig aukist og búa þarf sig undir möguleika á sprengigosi. Hættusvæði hefur verið skilgreint út frá legu kvikugangsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert