Tveir í gæsluvarðhaldi vegna skotárásarinnar

Mennirnir voru handteknir síðastliðna nótt.
Mennirnir voru handteknir síðastliðna nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tveir karlmenn voru í kvöld úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald, eða til fimmtudagsins 4. janúar, í Héraðsdómi Reykjaness vegna skotárásar í Hafnarfirði á aðfangadagskvöld.

Mennirnir voru báðir handteknir síðastliðna nótt, en þriðji maðurinn, sem var handtekinn í gær, er laus úr haldi. Ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir honum.

Í tilkynningu lögreglu segir að mennirnir sæti gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert