Beint: Eldgos við Grindavík

Eld­gos braust út klukkan 7.57 að morgni sunnudagsins 14. janúar, skammt norður af Grindavík, þegar sprunga opnaðist suðaust­an við Haga­fell.

Greint var samstundis frá upphafi gossins á mbl.is.

Fljótt varð ljóst að sprungan þveraði varnargarða sem gerðir höfðu verið fyrir ofan bæinn. Hraun úr sprungunni hefur runnið með varnargörðunum og í vestur yfir Grindavíkurveg.

Stutt sprunga opnaðist rétt norðan byggðarinnar eftir hádegi í gær og hefur hraun úr henni þegar eyðilagt nokkur hús efst í byggðinni.

mbl.is fylgist áfram með þróun mála og færir lesendum nýjustu tíðindi:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert