Fá að vera í bænum í sex klukkutíma

Frá Grindavík.
Frá Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einstaklingar, einyrkjar og fyrirtæki í Grindavík fá að fara inn í bæinn í dag í verðmætabjörgun frá klukkan 9 til 15.

Frá og með deginum í dag er aftur farið í fyrra útgefið skipulag þar sem aðgengi að bænum verður með þeim hætti að íbúar fá fyrir fram skilgreindan dag til að fara til Grindavíkur í lengri tíma en áður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum en þar segir að eins og áður hefur komið fram þá var skipulagi breytt í framhaldi af uppfærðu hættumatskorti Veðurstofunnar þar sem fram kom að líkurnar á kvikuhlaupi og eldgosi hafi aukist.

Aðkoma að Grindavík næstu daga verður bæði um Suðurstrandarveg og Nesveg en þegar ekið er frá Grindavík verður það um Norðurljósaveg inn á Grindavíkurveg. Á lokunarpóstum verður starfsfólk sem skannar QR-kóðann hjá öllum sem fara inn í bæinn, en með þeim hætti er vitað hvað margir eru í Grindavík hverju sinni.

Skipulagið í dag er með þessum hætti:

Einstaklingar og einyrkjar 9-15:
V1(Árnastígur og Skipastígur)
V4 (Litluvellir, Hólavellir, Sólvellir, Blómsturvellir og Höskuldavellir)
G2 (Ásabraut 14 og 16, Fornavör, Suðurvör, Norðurvör og Staðarvör)
H1 (Víkurhóp nema númer 24, 26 og 28)
I2 (Túngata að frátöldum húsum nr. 23 og 25)
Þórkötlustaðir (A1,2,3 og B1)
Fyrirtæki 9-15:
Fyrirtæki í V4 – haft verður samband við viðkomandi
G5 opið fyrir öll fyrirtæki
S4 opið fyrir fyrirtæki sem ekki eru X-merkt á korti
Öryggiskort Grindavíkur.
Öryggiskort Grindavíkur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert