Björgunarsveitin leiðir hópakstur niður Vatnsskarð

Í einhverjum tilvika hefur björgunarfólk ekið bílum niður Vatnsskarð.
Í einhverjum tilvika hefur björgunarfólk ekið bílum niður Vatnsskarð. Ljósmynd/Landsbjörg

Björgunarsveitir í Húnavatnssýslum og Skagafirði hafa staðið í ströngu í dag við að aðstoða ferðalanga yfir og niður af Vatnsskarði og út Langadal. Mikil hálka er efst í Bólstaðahlíðarbrekku og hafa bílar fokið þar til.

Í einhverjum tilvika hafa bílstjórar ekki treyst sér til að keyra áfram og hefur björgunarfólk ekið sumum bílum niður.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá slysavarnarfélaginu Landsbjörg, en þar segir jafnframt að safnað sé saman í hópakstur og bílum fylgt niður beggja vegna Vatnsskarðs. 

Hátt í tvö hundruð bíla lest var fylgt af Vatnsskarði …
Hátt í tvö hundruð bíla lest var fylgt af Vatnsskarði niður Langadal Til Blönduóss á þriðja tímanum í dag. Ljósmynd/Landsbjörg

Tjón varð á ökutækjum sem rákust saman

Björgunarsveitin á Dalvík hefur jafnframt staðið í ströngu en sveitin fór fyrr í dag til aðstoðar fólki sem var á ferð um Árskógsstrandarveg. Talsverður fjöldi ökumanna var í vandræðum þar og eitthvað tjón varð á ökutækjum þegar þau rákust saman.

Aðgerðum er þar að mestu lokið en enn er verið að fylgja ferðalöngum niður af Vatnsskarði bæði austan og vestan megin.

Eins og stendur er þar ekkert ferðaveður og fólk hvatt til að bíða með ferðalög milli landshluta fyrir norðan, að því er segir í tilkynningunni. 

Björgunarsveitamenn eru vel búnir til útiveru.
Björgunarsveitamenn eru vel búnir til útiveru. Ljósmynd/Landsbjörg
Safnað hefur verið saman í hópakstur á Vatnsskarði og bílum …
Safnað hefur verið saman í hópakstur á Vatnsskarði og bílum fylgt niður beggja vegna. Ljósmynd/Landsbjörg
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert