Katrín afhenti Bjarna lyklana

Katrín afhendir Bjarna lyklana.
Katrín afhendir Bjarna lyklana. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lyklaskipti urðu í forsætisráðuneytinu í morgun þegar Katrín Jakobsdóttir, fráfarandi forsætisráðherra, afhenti Bjarna Benediktssyni lyklana að Stjórnarráðinu. 

Tilkynnt var í gær að Bjarni tæki við embætti forsætisráðherra eftir að Katrín ákvað að gefa kost á sér sem forseti Íslands.

Að loknum lyklaskiptunum fundaði Katrín með Bjarna fyrir luktum dyrum áður en blaðamönnum gafst kostur á að taka við þau viðtöl. 

mbl.is/Kristinn Magnússon
Bryndís Hlöðversdóttir ráðuneytisstjóri tók vel á móti Bjarna.
Bryndís Hlöðversdóttir ráðuneytisstjóri tók vel á móti Bjarna. mbl.is/Kristinn Magnússon
Bjarni á leið í Stjórnarráðið í morgun.
Bjarni á leið í Stjórnarráðið í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert