Orri oddviti framsóknarmanna í Kópavogi

Orri Vignir Hlöðversson.
Orri Vignir Hlöðversson. Ljósmynd/Aðsend

Orri Vignir Hlöðversson, forstjóri Frumherja og fyrrverandi bæjarstjóri í Hveragerði, verður oddviti Framsóknarflokksins í komandi sveitarstjórnakosningum. Var framboðslistinn samþykktur á fulltrúaráðsfundi flokksins í gærkvöldi.

Í öðru sæti listans verður Sigrún Hulda Jónsdóttir, leikskólakennari og Björg Baldursdóttir, grunnskólastjóri, í 3. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert