Philae er vaknað á halastjörnunni

Hér má sjá teiknaða mynd af því hvernig áætlað er …
Hér má sjá teiknaða mynd af því hvernig áætlað er að farið líti út á halastjörnunni 67P/Churyumov-Gerasimenko. Philae hefur nú legið í dvala í tæplega 7 mánuði. AFP

Lendingarfarið Philae sem hefur setið í dvala á yfirborði hala­stjörn­unn­ar 67P/​Churyu­mov-Gerasi­men­ko síðan í nóvember vaknaði upp í dag, en með meiri nálægð við sólina hefur verið hægt að hlaða sólarbatterí farsins nægjanlega til að kveikja á því að nýju. Í frétt á vef BBC kemur fram að sambandið við farið hafi nú varað í 85 sekúndur og kom tíst á Twitter með skilaboðum frá farinu.

Philae var sent á vegum Evrópsku geimstofnunarinnar, ESA, en það var losað frá móðurfarinu Rosetta þann 12. nóvember á síðasta ári. Hafði Rosetta þá verið á leiðinni að halastjörnunni í 10 ár og ferðast alls rúma sex milljarða kílómetra.

Við lendingu skoppaði farið allt að kílómetra upp af yfirborðinu áður en það lenti á ný. Reynt var að tjóðra það niður með skutlum, en yfirborð halastjörnunnar var of hart til að það tækist. Endaði farið innan um kletta sem skyggja á sólarrafhlöður þess og því fór Philae í dvala eftir að hafa sent rannsóknaupplýsingar í 60 klukkustundir. Síðan þá hefur halastjarnan verið of langt frá sóliinni fyrir rafhlöðurnar til að hlaðast, en vonast var til þess að farið myndi vakna á ný þegar nær væri komið.

Litmynd sem könnunarfarið Rosetta tók af halastjörnunni og birt var …
Litmynd sem könnunarfarið Rosetta tók af halastjörnunni og birt var í síðustu viku. ESA/Rosetta/MPS for OSIRIS Team MPS/UPD/LAM/IAA/SSO/INTA/UPM/DASP/IDA
Útsýni Philae frá lendingarstað sínum á halastjörnunni. Í forgrunni má …
Útsýni Philae frá lendingarstað sínum á halastjörnunni. Í forgrunni má sjá einn fóta lendingarfarsins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert