Óhóflega girnileg útgáfa af föstudagspítsunni

Mögulega næsta útfærsla af föstudagspizzu.
Mögulega næsta útfærsla af föstudagspizzu. mbl.is/Stine Christiansen

Erum við mögulega að sjá nýjung sem gæti leyst föstudagspizzu af hólmi? Það má í það minnsta prófa þessa girnilegu smjördeigsböku með osti og marineruðu grænmeti, því girnileg er hún. Hér er tilvalið að nota paprikur í öllum litum til að fá fallega litapallettu á bökuna sem gleður augað.

Ostaunaður með marineruðu grænmeti

Tertudeig:

  • Smjördeig
  • 250 g ricotta
  • 100 g mjúkur geitaostur
  • 1 egg
  • Rifinn sítrónubörkur af ½ sítrónu

Fylling:

  • 2 paprikur
  • 2-3 vorlaukar
  • 1 kúrbítur
  • 2 msk. sítrónusafi
  • ½ dl ólífuolía
  • Rifinn parmesan
  • Kryddjurtir að eigin vali

Aðferð:

  1. Rúllið smjördeiginu út á bökunarpappír á bökunarplötu.
  2. Hrærið ricotta, geitaosti, eggi og sítrónuberki saman og smyrjið á deigið, sirka 2 cm frá kanti.
  3. Bakið deigið í 16 mínútur við 210°.
  4. Skerið paprikuna í þunna strimla og rífið vorlaukinn í strimla. Skrælið kúrbítinn niður í langa strimla. Veltið grænmetinu upp úr ólífuolíu og sítrónusafa og látið standa í 10 mínútur.
  5. Dreifið grænmetinu yfir botninn og stráið timían og parmesan yfir.
  6. Bakið í 6 mínútur þar til osturinn hefur bráðnað.
  7. Dreifið kryddjurtum yfir eftir smekk og berið fram strax.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert