Beikon lasagna sem er löðrandi í osti

mbl.is/Hormel

Ókey - þetta er formlega subbulegasta en um leið girnilegasta uppskrift sem við höfum rekist á lengi. Hún á rætur sínar að rekja til Bandaríkjanna og engan skyldi undra. Hér sameinast máttarstólpar subbumataræðis í einni sjóðheitri uppskrift enda ekki á hverjum degi sem hægt er að segja: stökkt beikon, löðrandi ostur og sjóðheitt lasagna í einni setningu. Beikonið verður reyndar ekki stökkt en það er aukaatriði.

Beikon lasagna sem er löðrandi í osti

600 g beikon

450 g kjúklingabringur frá Ali

1 laukur, saxaður

1 dós af niðursoðinni tómatsósu

1 dós niðursoðnir tómatar, vökvanum hellt af og tómatarnir saxaðir niður

Lasagna plötur eins og þarf (fer eftir stærð formsins en við miðum við tvö lög)

600 g af rifnum osti (fjórir bollar)

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 180°C. Steikið beikonið, hellið fitunni af. Takið tólf sneiðar til hliðar og saxið afganginn niður.
2. Steikið kjúklinginn á pönnu uns hann er steiktur í gegn. Blandið saxaða beikoninu saman við, tómatsósunni og söxuðu tómötunum. Blandið vel saman og látið malla á pönnunni.
3. Setjið eina til tvær ausur af kjúklingablöndunni í eldfast mót. Setjið lasagna plötur yfir, því næst þriðjunginn af kjúklingablöndunni sem eftir er, síðan þriðjung ostsins og síðan helminginn af beikonsneiðunum. Því næst lasagnaplötur - kjúklingablöndu - ost og beikon.
4. Setjið álpappír yfir og bakið í ofninum í 15 mínútur eða þar til osturinn er orðinn vel bráðnaður.
5. Borðið með bros á vör og passið ykkur að falla ekki í yfirlið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert