Létt og góð fiskisúpa með sítrónuaioli

Ljósmynd/Hanna Þóra

Góð fiskiskúpa klikkar aldrei og þessi uppskrift kemur úr smiðju Hönnu Þóru sem eldar, eins og við þekkjum vel, frábæran mat.

Hún segist hafa búið súpuna til um daginn og fundist hún mjög góð. Síðar hafi hún aftur prófað að laga hana og þá notað tilbúinn fiskikraft sem hafi ekki verið síðra.

„Sítrónuaiolið gerir mikið fyrir súpuna og er alveg bráðnauðsynlegt með. Ég geymi oft humarskeljar í frysti til að eiga fyrir soðgerð. Hægt að nota ferskar rækjur og búa til soð úr skeljunum. Ef tíminn er naumur eða engar skeljar í boði er líka hægt að nota fiskisoð. Mæli algjörlega með þessari súpu á köldum vetrardegi.“

Athugið að það er alltaf gott að taka frosinn fisk og rækjur úr frysti daginn áður og láta það þiðna rólega í kæli.

Matarbloggið hennar Hönnu er hægt að nálgast HÉR.

Létt og góð fiskisúpa með sítrónuaioli

Súpa

  • Heimagert soð:
    • Skel af humri/rækjum
    • 4 msk olía
    • 2 msk tómatpúrra
    • 3-4 dl hvítvín
    • 12 dl vatn
  • Ef notaður er tilbúinn kraftur er hann settur í ásamt 12 dl af vatni (setti u.þ.b. 2 msk fiskikraft – sjá umbúðir)
  • 700 g þorskhnakki (eða annar sambærilegur fiskur) – skorinn í bita
  • 250 g  rækjur
  • 3 skalottulaukar – skornir smátt
  • 1 stk. fennel – skorið í þunnar sneiðar
  • 2-3 gulrætur – skornar í litla bita
  • 2-3 hvítlauksrif – skorin smátt eða pressuð
  • 2-3 vorlaukar – skornir í þunnar sneiðar
  • 1 tsk. fennelfræ – mulin í morteli (eða ½ tsk steytt fennel)
  • ½ tsk. chiliflögur
  • 1 flaska tómatpassata (maukaðir tómatar)
  • 1 tsk. salt
  • 2 dl steinselja
  • 2-3 msk. sambuca (má sleppa)

Sítrónuaioli – má helminga magnið en smekksatriði hversu mikið hver og einn vill 

  • ½ rauður chilipipar – fræhreinsaður og saxaður fínt
  • 1 hvítlauksrif – pressað
  • 1 msk. sítrónusafi
  • 2 eggjarauður
  • 2½ dl olía (gott að nota eingöngu rapsolíu eða sambland af henni og annarri olíu)
  • ½-1 tsk sítrónubörkur – rifinn
  • saltflögur
  • nýmalaður hvítur pipar

Verklýsing

  1. Soð: Skelin tekin og steikt í 2-3 mínútur í olíu/smjöri á pönnu. Tómatpúrru bætt við og víni og vatni hellt út í. Látið sjóða undir loki í 20 mínútur. Soðið sigtað frá og skelinni hent. Ef soðið er ekki útbúið eru notaðir 1,2 lítrar af tilbúnu soði (12 dl vatn og fiskiteningur/duft).
  2. Laukur, fennel og gulrætur steikt í 2 msk af olíu í potti í u.þ.b. 3 mínútur. Hvítlauk, vorlauk,  fennelfræjum og chilifræjum bætt við. Látið steikjast í 2-3 mínútur.
  3. Tómatpassata og fiskisoði bætt við – látið sjóða í 15 mínútur – saltað. Ath. Geymið rækjurnar og fiskbitana í kæli á meðan súpan er útbúin. Gott að setja vökvann, sem rennur af fiskinum, út í súpuna.
  4. Sítrónuaioli: Hvítlaukur, sítrónusafi og eggjarauður þeytt saman. Olíu hellt í mjórri bunu og þeytt áfram þar til áferðin verður eins og majones. Chilipipar og sítrónuberki bætt saman við ásamt salti og pipar.
  5. Súpan látin ná suðu og fiskurinn settur út í. Látið krauma í u.þ.b. 4 mínútur (háð stærð fiskbitanna). Sambuca bætt við.
  6. Súpan tekin af hellunni og rækjurnar settar út í. Skreytt með steinselju.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert