Kjúklingaborgari með Havarti og kóríandermajó

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Hér er á ferðinni kjúklingaborgari sem er sagður algjört lostæti. Kóríandermajó hljómar hið minnsta afskaplega spennadi og löðrandi osturinn gerir alltaf gæfumuninn. Það er engin önnur en Helena Gunnars sem á heiðurinn af þessari snilld.

Kjúklingaborgari með Havarti og kóríandermajó

Fyrir fjóra

  • 8 úrbeinuð kjúklingalæri
  • 2 límónur
  • 1 handfylli ferskt kóríander
  • 3 msk. majones
  • 2 msk. sýrður rjómi 10% frá Gott í matinn
  • 1 græn papríka
  • 2 rauðlaukar
  • 1 Óðals-Havarti
  • 4 hamborgarabrauð, t.d. brioche
  • sjávarsalt, nýmalaður svartur pipar og ólífuolía

Aðferð:

  1. Byrjið á að marinera kjúklinginn. Setjið kjúklingalærin í skál og rífið börkinn af einni límónu yfir og kreistið safann einnig yfir.
  2. Takið kóríander og skerið neðri helminginn af stilkunum mjög smátt og setjið í skálina. Geymið dálítið af kóríanderblöðum fyrir sósuna.
  3. Setjið 2 msk. af ólífuolíu yfir ásamt vel af salti og nýmöluðum pipar og leyfið þessu að standa á meðan þið undirbúið restina af réttinum.
  4. Hrærið saman majónesi, sýrðum rjóma, berki af límónu, safa úr hálfri límónu og smátt söxuðum kóríander. Smakkið til með salti og pipar og setjið til hliðar.
  5. Hitið pönnu á háum hita. Skerið rauðlauk og papriku í þunnar sneiðar og steikið upp úr dálítilli olíu, kryddið með salti og pipar. Takið af hitanum þegar kominn er fallegur litur á grænmetið.
  6. Grillið kjúklingalærin þar til elduð í gegn, setjið þá tvær vænar sneiðar af Havarti á hvert læri, piprið og lokið grillinu þar til osturinn bráðnar og hitið brauðin á meðan.
  7. Setjið kjúklinginn á brauðin, tvö læri á hvern borgara. Toppið kjúklinginn með steiktu grænmeti og kóríandermajonesi. Berið fram með ofnbökuðum kartöflubátum.

Höfundur: Helena Gunnarsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert