Saltkarmellukakan sem smellpassar í veisluna

Það eru fáir jafn flinkir í veisluhöldum og Berglind Hreiðarsdóttir en hún heldur úti bloggsíðuni Gotterí og gersemar sem nýtur mikilla vinsælda. Berglind er jafnframt höfundur bókanna Veislubókin og Saumaklúbburinn en þar leiðir hún lesendur í sannleikann um hvernig hægt er að halda veislu án þess að tapa glórunni.

Margir eru þessa dagana á fullu að skipuleggja fermingarveislur og því ekki úr vegi að leita í veislubrunn Berglindar. Hér getur að líta að köku sem er einstaklega bragðgóð

Vanillukaka með saltkaramellu

Hér er á ferðinni undursamleg vanillukaka með saltkaramellu! Karamellukrem fer einstaklega vel með léttum vanillubotnunum og þessi var einstaklega góð. Ég sá köku skreytta á svipaðan hátt á Pinterest en þróaði mína eigin samsetningu hvað kökuna varðar og eins og svo oft áður kom vinkona mín Betty til bjargar.

Kaka

  • 1 x Betty Crocker-vanillukökuduft
  • 1 x Royal-vanillubúðingur
  • 4 egg
  • 100 ml matarolía
  • 200 ml vatn

1. Hitið ofninn í 160°C og hrærið saman egg, olíu og vatn.

2. Bætið kökuduftinu saman við og hrærið í nokkrar mínútur, þá má bæta búðingsduftinu við og blanda stutta stund til viðbótar.

3. Skiptið niður í 3 x 15 cm kökuform sem búið er að spreyja vel að innan með matarolíuspreyi.

4. Bakið í um 25 mínútur eða þar til þið sjáið að kantarnir losna örlítið frá forminu efst, kælið.

Saltkaramella

  • 360 g sykur
  • 130 g smjör við stofuhita
  • 120 ml rjómi
  • 2 tsk. sjávarsalt

1. Hellið sykrinum á pönnu og hitið við háan hita þar til hann fer að kristallast, hrærið mjög reglulega.

2. Þegar hann byrjar að bráðna má lækka hitann í meðalháan og hræra áfram þar til sykurinn er uppleystur.

3. Þá má bæta smjörinu á pönnuna og hræra vel og því næst rjómanum og hræra þar til samfelld karamella hefur myndast. Hér er saltinu síðan hrært saman við.

4. Takið af hitanum og hellið í skál, leyfið að kólna áður en notað með kreminu.

Vanillukrem

  • 180 g smjör við stofuhita
  • 680 g flórsykur
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 150 ml rjómi

1. Þeytið smjörið þar til létt og ljóst.

2. Bætið flórsykri, vanillusykri og rjóma saman við í nokkrum skömmtum.

3. Skafið vel niður á milli og hrærið þar til létt krem hefur myndast.

Samsetning

1. Skerið aðeins ofan af öllum kökubotnunum og smyrjið um ½ cm af þykku lagi af smjörkremi ofan á neðsta botninn og því næst smjörkremsvegg með hringlaga stút yst á botninn (þetta gert til þess að karamellan leki ekki út). Fyllið upp í með saltkaramellu.

2. Leggið botn númer 2 ofan á og endurtakið og lokið síðan með þriðja botninum og kælið kökuna í um 30 mínútur.

3. Hjúpið næst alla kökuna með þunnu lagi af smjörkremi og kælið aftur í um 10 mínútur.

4. Þá má setja lokaumferð af kremi á kökuna sem er um 1 cm þykkt smjörkremslag. Áður en þið sléttið úr kreminu má setja smá af karamellu hér og þar með skeið/hníf og draga með kreminu þegar það er sléttað með kökuspaða. Að lokum má strá smá grófu salti efst á kökuna og best er að geyma hana í kæli.

Vanillukökuduftið frá Betty finnst mér virkilega ljúffengt og að gera kökupinna með því er himneskt, svona ef þið ætlið að fara út í frekari kökugerð en þessa hér!

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert