Tvöföld súkkulaðiánægja í smákökum

Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Þegar eitt súkkulaði er ekki nóg, þá er öðru bætt saman við – hér eru nefnilega smákökur með ljósum og hvítum súkkulaðidropum. Uppskriftin er einföld, fljótleg og fullkomin á aðventunni að sögn Hildar Rutar, sem á heiðurinn að þeim.

Tvöföld súkkulaðiánægja í smákökum

Uppskrift gerir 26-28 smákökur

  • 1,2 dl púðursykur
  • 50 g smjör (við stofuhita)
  • 1 egg
  • 2 dl hvítir súkkulaðidropar frá Bowl and Basket
  • 1 tsk vanilludropar
  • 2 dl hveiti
  • 1 tsk lyftiduft
  • 1 dl möndlumjöl
  • 1½ dl ljósir súkkulaðidropar frá Bowl and Basket.

Aðferð:

  1. Bræðið 1 dl af hvítu súkkulaði yfir vatnsbaði.
  2. Hrærið saman smjör og púðursykur.
  3. Bætið egginu saman við og hrærið þar til blandan verður létt og ljós.
  4. Bætið við hvíta súkkulaðinu og vanilludropum og hrærið.
  5. Sigtið hveiti og lyftidufti út í blönduna og hrærið.
  6. Að lokum bætið við möndlumjöli, 1 dl af hvítum súkkulaðidropum og 1½ dl af ljósum súkkulaðidropum. Hrærið rólega saman. Gott að kæla deigið í 30-60 mínútur.
  7. Notið teskeið og hendurnar til þess að móta litlar kúlur úr deiginu. Dreifið á smjörpappírsklædda bökunarplötu og  passið að hafa gott bil á milli þeirra.
  8. Bakið við 180°C í 8-10 mínútur og njótið.
Smákökur með tvöfaldri súkkulaðiánægju.
Smákökur með tvöfaldri súkkulaðiánægju. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert