Hér erum við með uppskrift frá Maríu Gomez á Paz.is sem ætti að slá í gegn við hvert matarborð. Um er að ræða einfaldan og fremur fljótlegan rétt sem er einstaklega bragðgóður.
Við hvetju ykkur svo sannarlega til að prófa!
Ofureinfaldur kjúklingaréttur í einu fati
- 500 g sveppir
- 1 poki Rose Poultry kjúklingalundir
- 1 stk. villisveppa kryddostur
- 4 marin hvítlauksrif
- 500 ml matreiðslurjómi
- 1-2 tsk. þurrkað timian
- 1 tsk. fínt borðsalt
- 1/2 tsk. gróft malaður svartur pipar
- 1 tsk. Oscar kjúklingakraftur í dufti
- 1 1/2 msk. Maizena sósujafnari
Aðferð
- Byrjið á að skera sveppina í 4 parta hvern svepp eða 2 parta ef sveppirnir eru smáir.
- Setjið næst kjúklingalundirnar, í heilu lagi, í stórt eldfast mót.
- Saltið lundirnar og piprið og setjið kjúklingakraftinn yfir og hrærið saman með skeið.
- Setjið næst sveppina yfir og þurrkað timian.
- Raspið niður villisveppaostinn og dreifið yfir lundirnar og sveppina ásamt mörðum hvítlauknum.
- Hellið svo matreiðslurjómanum yfir og stingið í 210°C heitan ofninn i 25 mín.
- Þegar 25 mín eru liðnar takið þá mótið út og dreifið maizena sósujafnara yfir allt og stingið aftur inn í 10 mínútur.
- Þegar rétturinn er tekinn út er gott að hræra aðeins í honum þar til allt er vel blandað saman og sósan verður þykk og góð.
- Berið fram með grjónum eða cous cous og fersku salati.