Grillaðir bananar og rjómasúkkulaði með súkkulaðiperlum

Ljósmynd/Linda Ben

Þessir grilluðu bananar eru alveg einstaklega góðir, segir Linda Ben um þennan girnilega eftirrétt. „Ég nota rjómasúkkulaði með súkkulaðiperlum sem gerir þá ekki aðeins fallega og skemmtilega, heldur gefa perlurnar bönununum skemmtilega stökka áferð sem gerir þá ómótstæðilega!

Linda mælir með því að kaupa einn poka af súkkulaðiperlum í lausu með og skreyta bananana með þeim þegar þeir eru tilbúnir. Þannig verði rétturinn sérlega litskrúðugur og girnilegur á að líta.

Grillaðir bananar með súkkulaðiperlu-rjómasúkkulaði

  • 3 bananar
  • 150 g Síríus rjómasúkkulaði með súkkulaðiperlum
  • Síríus sælkerabaksturs-súkkulaðiperlur sem skraut

Aðferð:

  1. Kveikið á grillinu og stillið á vægan til meðalhita.
  2. Skerið rauf í bananana langsum og raðið 6-7 bitum af rjómasúkkulaðinu ofan í raufina á hverjum banana.
  3. Pakkið bönununum í álpappír og grillið varlega þar til þeir eru orðnir mjúkir og súkkulaðið bráðnað.
  4. Athugið að hægt er að baka bananana í ofni. Stillið þá ofninn á 220°C og undir/yfir hita. Bakið í u.þ.b. 15 mínútur í álpappírnum.
Ljósmynd/Linda Ben
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert