Yfirliðsvaldandi uppskrift Berglindar Guðmunds

Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Frábær réttur þar sem hægt er að nota það grænmeti sem til er í ísskápnum. Hér er rjóminn og grænmetið í aðalhlutverfi en hægt er að skipta grísakótilettunum út fyrir kjúkling ef því er að skipta. Geggjaður réttur úr smiðju Berglindar Guðmunds á GRGS.is

Grísakótilettur í rjómagrænmetisblöndu

  • 2-3 pakkar grísakótilettur í suðrænni kryddblöndu
  • 1-2 púrrulaukar, sneiddur
  • 1/2 - 1 brokkólí, smátt skorið
  • 1 paprika, skorin í teninga
  • 1/2 laukur, saxaður
  • handfylli spínat
  • 1 kjúklingateningur
  • 500 ml matreiðslurjómi
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Takið kjötið úr pakkningunni og þerrið.
  2. Hitið 1 msk af smjöri og 1 msk. af olíu á pönnu og létt-brúnið kótiletturnar á báðum hliðum. Látið í ofnfast mót.
  3. Steikið grænmetið þar til það er farið að mýkjast. Hellið rjóma saman við og setjið teninginn út í. Smakkið til með salti og pipar og látið malla í nokkrar mínútur.
  4. Hellið rjómablöndunni yfir kótiletturnar og látið inn í 200°c heitan ofn í 15-20 mínútur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert