Samtök iðnaðarins kynntu nýsköpunarstefnu samtakanna á opnum fundi í Iðnó fyrir skömmu. Fjölmennt var á fundinum og að dagskrá lokinni var boðið upp á léttar veitingar. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra tók þátt í pallborðsumræðum þar sem rætt var um nýsköpunarumhverfið á Íslandi en á fundinum kom meðal annars fram hvaða umbætur þarf að ráðast í til að ná fram metnaðarfullri framtíðarsýn um að á Íslandi verði skilyrði til nýsköpunar með því besta sem þekkist.
Á meðal gesta á opna fundinum voru Ragnheiður H. Magnúsdóttir sem er ein öflugasta konan í heimi nýsköpunar í dag. Eins mætti nýr framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, Berglind R. Ólafsdóttir, og Jóhann Þór Jónsson frá Advania, sem hefur lagt málefnum, er varða umhverfi gagnavera, til krafta sína. Guðmundur Hafsteinsson hjá Google var á staðnum svo einhverjir séu nefndir.
Ragnheiður H. Magnúsdóttir starfar hjá Veitum og Berglind R. Ólafsdóttir nýr framvkæmdastjóri ON láta til sín taka þegar kemur að nýsköpunarmálum.
mbl.is/Aðsend
Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðrún Hafsteinsdóttir formaður SI.
mbl.is/Aðsend
Þorkell Sigurlaugsson hjá Háskólanum í Reykjavík og Jóhann Þór Jónsson hjá Advania.
Bergþóra Halldórsdóttir hjá Íslandsstofu og Karl Guðmundsson hjá Florealis.
mbl.is/Aðsend
Edda Björk Ragnarsdóttir, Vilhjálmur Hilmarsson og Ragnheiður Héðinsdóttir starfa öll hjá Samtökum iðnaðarins.
Margrét Ormslev hjá CRI, Hildur Elín Vignir hjá Iðunni, Margrét Kristín Sigurðardóttir hjá Samtökum iðnaðarins.
mbl.is/Aðsend
Fjölmennt var á opnum fundi Samtaka iðnaðarins í Iðnó.
mbl.is/Aðsend
Sigríður Mogensen hjá SI, Frosti Ólafsson hjá ORF líftækni, Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir hjá Marel ásamt ráðherra í pallborðsumræðum.