Danshöfundur Timberlake kennir Íslendingum að dansa

Justin Timberlake er þekktur fyrir flott dansspor.
Justin Timberlake er þekktur fyrir flott dansspor.

Danshöfundur og dansarinn sem dansar hjá Justin Timberlake, Ivan Koumeav, mun kenna Íslendingum réttu sporin á fríu dansnámskeiði á vegum Dansfestival og Reebok Fitness.

Herra Koumeav komst á topp tíu listann í sjónvarpsþáttunum So You Think You Can Dance? árið 2006. Hann kemur hingað til lands í tilefni af Justin Timberlake-tónleikunum sem fram fara 24. ágúst. Daginn áður, á Menningarnótt, gefst Íslendingum kostur á að læra vinsælustu sporin af kappanum. Á námskeiðinu mun hann kenna „Groove“ Timberlakes hjá DanceCenter Reykjavík.

Þú getur skráð þig HÉR.

Ivan Koumeav dansari og danshöfundur Justin Timberlake.
Ivan Koumeav dansari og danshöfundur Justin Timberlake.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál