Trine Nørgaard innanhússstílisti í Kaupmannahöfn hefur sett sína fögru íbúð á sölu. Hún hefur farið mjúkum höndum um íbúðina og er útkoman falleg. Hún bjó í tvö ár í Singapore og er stíllinn hennar svolítið litaður af því. Í íbúðinni má til dæmis sjá bast í bland við mjúka liti.
Nørgaard breytti eldhúsinu í íbúðinni. Það var með viðarhurðum og svartri flísalagðri borðplötu en hún lakkaði innréttinguna í grágrænum tón og setti hvíttaðar viðarborðplötur á í staðinn. Það léttir töluvert á íbúðinni að gera þetta. Það sama gerði hún inni á baði og er útkoman heillandi.
HÉR er hægt að skoða íbúðina nánar.