Hjónin Heiða Kristín Helgadóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Niceland, fiskútflutningsfyrirtækis Olivers Luckett, og Guðmundur Kristján Jónsson hafa sett íbúð sína við Öldugötu á sölu. Um er að ræða 129 fm íbúð sem stendur í húsi sem byggt var 1961.
Heimili þeirra Heiðu Kristínar og Guðmundar er skapandi og skemmtilegt, ekkert nema listaverk út um allt og falleg um að litast. Það á við öll herbergi íbúðarinnar.
Eldhús er tengt inn í stofu en þó ekki alveg inni í stofunni heldur svona til hliðar. Þar er hvít sprautulökkuð innrétting og krúttleg eyja. Svo er hengirúm í íbúðinni þannig að hægt er að hafa það raunverulega huggulegt.