Sveitasetur sem eitt sinn var í eigu tengdafjölskyldu Margrétar Bretaprinsessu, systur Elísabetar drottningar, er til sölu. Hello greinir frá því að Margrét hafi oft dvalið á þessum sögufræga stað í Norður-Wales um helgar á meðan hún var gift Antony Armstrong-Jones.
Byrjað var að byggja setrið á 18. öld en á níunda áratug síðustu aldar var því breytt í hjúkrunarheimili og nokkrum árum eftir það í hótel. Enn er að finna húsgögn og myndir frá tengdafjölskyldu Margrétar á staðnum svo andinn hefur lítið breyst síðan Margrét flúði hallarlífið í London.