Við Kvisthaga 12 í 107 Reykjavík stendur glæsilegt 399 fm hús með sundlaug. Íbúar hússins eru hjónin Sveinn R. Eyjólfsson fyrrverandi blaðaútgefandi og Auður Sigríður Eydal. Hún er skráð fyrir fasteigninni.
HÉR er hægt að lesa afmælisgrein um Svein sem birtist í DV árið 1988 eða þegar hann fagnaði fimmtugsafmæli sínu.
Húsið er stórkostlegt á allan hátt. Það sem er efa mest spennandi er sundlaug sem er staðsett inni í yfirbyggðum garðskála.
Þegar inn í húsið kemur tekur við heillandi heimur sem inniheldur falleg listaverk og litrík húsgögn. Gólfin eru svo skreytt með fallegum og vönduðum mottum.
Eins og sjá má eru myndirnar alger veisla fyrir augað. Sérstaklega fyrir þá sem elska áttunda áratuginn og þeim tískustraumum sem þá voru ríkjandi.