Gott grill breytir stemningunni í sólinni

Vönduð þjónusta og góður varahlutalager skiptir kaupendur æ meira máli við val á grilli. Einar Long segir hvorki gott fyrir jörðina né veskið að ætla að endurnýja heimilisgrillið með nokkurra ára millibili. 

Eftir kalt og blautt sumar í fyrra er útlit fyrir að viðra muni betur á grilláhugafólk í ár. Einar Long í Grillbúðinni segir það greinilegt á annríkinu í versluninni á vormánuðum að myndast hefur uppsöfnuð þörf á nýjum grillum og varahlutum í þau gömlu. „Salan fór vel af stað viku fyrir páska og hefur verið mikið að gera síðan,“ segir Einar en hann hefur átt og rekið verslunina í rösklega tólf ár.

Þegar kemur að því að kaupa vandað grill virðast Íslendingar vita hvað þeir vilja. Grillbúðin selur langmest af gasgrillum en í versluninni má einnig finna úrval kola- og reykgrilla. „Í ár höfum við bætt við ódýrari línu sem hefur selst mjög vel en hinn dæmigerði viðskiptavinur er umfram allt að leita að vönduðu grilli sem endist,“ útskýrir Einar og eru gasgrillin frá Landmann í aðalhlutverki í verlsuninni hans. „Eftir tólf ára rekstur veit fólk bæði að það má treysta því að grillin okkar endast vel og að við bjóðum upp á alla þá varahluti og þjónustu sem þarf til að halda grillunum í toppstandi.“

Hugsað vel um grillið

Landsmenn eru upp til hópa orðnir mjög meðvitaðir um að kaupa vandaðar vörur sem stóla má lengi á, og vilja fjárfesta í grilli sem endist í áraraðir. Einar segir að í því felist sparnaður og það sé að auki umhverfisvænna en að kaupa reglulega nýtt grill og henda því gamla: „Greinilegt er að fólk hugsar betur um grillin sín og lagar hluti eins og brennara og hitadreifara þegar þeir gefa sig. Þannig sparast bæði peningur til lengri tíma litið og ekki er verið að ganga á auðlindir náttúrunnar að óþörfu.“

Aðstæður á Íslandi eru krefjandi og kalla á grill úr vönduðum efnum, sem þola veður og vind, og eru jafnframt með kröftuga brennara og góða hitaeinangrun. Einar segir Landmann-grill eiga að endast í 12-15 ár með umhyggju og réttu viðhaldi. „Almenn þrif skipta þar miklu máli og koma líka í veg fyrir að kvikni í fitu við eldamennskuna. Gott er að setja grillgrindurnar í heitt sápuvatn til að þrífa þær vel og nota má sérstakt grillhreinsiefni innan á grillið en grillbón á ytra byrðið,“ segir hann og minnir á að grill sem eru postulíns-emaleruð að innan þoli hitann frá brennurunum betur, sem lengi endinguna. „Ýmsir íhlutir gefa sig alltaf á endanum og algengt að skipta þurfi um brennara eftir 5-10 ára notkun.“

Auk þess að halda grillinu hreinu þarf að verja það gegn náttúruöflunum. „Yfirbreiðuna má ekki vanta og þarf að gæta þess að hún lofti svo að rakinn lokist ekki inni. Við höfum til sölu vatnsheldar yfirbreiður sem anda svo að rakinn sleppur út og grillið því enn betur varið en ella.“

Sælustaður fjölskyldunnar

Það virðist alltaf myndast ánægjuleg stemning þegar grillað er, og varla nokkur til sem myndi afþakka boð í grillveislu. Segir Einar að mörgum þyki ánægjustundirnar svo ómissandi að þeir grilli ekki bara á sumrin heldur árið um kring, og án þess að þurfi sérstakt tilefni. „Enda er grillmatur frábær og fjölbreytnin í grillmatseld mikil.“

Bendir Einar á nokkra aukahluti sem geta fullkomnað grilldaginn, og er t.d. mjög vinsælt að kveikja í viðardrumbum í eldstæði þegar grillveisla er framundan. „Eldstæðið veitir yl og fallega birtu, og má líka nota til að grilla eitthvað skemmtilegt með smáfólkinu, eins og sykurpúða á priki.“

Af öðrum ómissandi aukahlutum nefnir Einar pítsusteininn sem mörgum þykir opna alveg nýjar víddir í grillmennskunni. „Við seljum líka mikið af spæni og þar til gerðum boxum fyrir gasgrillin, til að gefa matnum gott reykjarbragð. Svo hjálpa þráðlausir kjöthitamælar til við að láta steikina heppnast fullkomlega.“

Einnig selur Grillbúðin þráðlausa kjöthitamæla sem eru svo fullkomnir að hægt er að fylgjast með í snjallsímanum hvort steikin hafi náð réttum kjarnhita. „Þetta er góð fjárfesting og stuðlar að því að steikingin heppnist fullkomlega.“

Einar Long.
Einar Long. mbl.is/Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál