Við Tréstaði í Hörgársveit stendur glæsilegt 172 fm heilsárshús sem er ákaflega vel hannað og vel skipulagt.
Húsið var byggt 2004 og einstaklega smekklega innréttað. Í húsinu eru gert ráð fyrir að fólk geti haft það sérlega náðugt og margir geti verið undir sama þaki. Stofan er til dæmis stór og eldhúsið er hannað þannig að hægt er að elda ofan í marga.
Í eldhúsinu er hvít sprautulökkuð innrétting með svörtum granítsteini á borðplötunni. Innréttingin passar vel við steypta vegginn sem liggur í gegnum allt húsið.
Í Markaðnum í dag kemur fram að Arion banki sé að draga saman seglin og því hafi þetta glæsihús verið sett á sölu.
Af fasteignavef mbl.is: Tréstaðir orlofshús Akureyri og Tréstaðir sumarhús