Barack og Michelle Obama fagna líklega vel þessa dagana og ekki bara af því það eru örfáir dagar til jóla. Hjónin hafa nýlega fengið afhent lúxussveitasetur á eyjunni Martha's Vineyard í Massachusettsríki. Obama-hjónin keyptu þó ekki bara eitthvert hús en þau leigðu húsið í sumar og voru greinilega svo hrifin að þau ákváðu að splæsa í það.
Húsið er töluvert stærra en hinn hefðbundni íslenski sumarbústaður og kostaði skildinginn. Á vef TMZ eru birtar myndir af húsinu og kemur fram að það hafi kostað fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og konu hans 11,75 milljónir Bandaríkjadala eða tæpan einn og hálfan milljarð íslenskra króna. Eigandi körfuboltaliðsins Bolton Celtics, Wyc Grousbeck, er sagður hafa átt húsið.
Húsinu fylgir stór landareign og er útsýni út á sjó. Pláss ætti að vera fyrir dætur hjónanna en alls eru heil sjö svefnherbergi í húsinu.