Verðlaunahönnun fyrir þá sem þvo hendur og fara á salerni

Tryggvi Þorsteinsson og Erla Dögg Ingjaldsdóttir reka hönnunarfyrirtækið Minarc í …
Tryggvi Þorsteinsson og Erla Dögg Ingjaldsdóttir reka hönnunarfyrirtækið Minarc í Kaliforníu.

Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson hönnuðir og eigendur Minarc-arkitektastofunnar í Santa Monica í Kaliforníu unnu á dögunum til verðlaunanna The European Product Design Award, fyrir hönnun sína á vaski sem sparar vatn. Hann nefnist ReFlow. Í viðtali í Heimili og hönnun, sem fylgir Morgunblaðinu í dag, segja þau frá uppfinningunni sem mun hjálpa fólki að fara betur með auðlindir náttúrunnar. 

ReFlow snýst um að nota vatnið sem notað er í vaskinum til að sturta niður í klósettinu en með því er hægt að spara allt að sjö gallon af vatni.

The European Product Design Award verðlauna hönnuði sem eru góðir í því að hanna hluti sem nýtast samferðafólkinu vel í daglegu lífi og koma með splunkunýja sýn á hlutina. Það er því ekki að undra að Erla Dögg og Tryggvi hafi hlotið þessi verðlaun.

Þegar Erla er spurð að því hver sé hugmyndin á bak við hönnunina segir hún að fólk þurfi að hugsa betur um lífsgæði sín og fara betur með auðlindir náttúrunnar.

„Það er engin ástæða til þess að henda vatninu sem við þvoum okkur um hendurnar með og hella nýju vatni í klósettkassann. Þetta eins og annað sem við gerum í okkar hönnunarviku, að benda fólki á hvað það gæti gert betur og þannig vonumst við alltaf til að það hvetji aðra með frjóan huga til að gera betur,“ segir Tryggvi.

Hún segir að hver niðursturtun geti innihaldið sjö gallon af vatni. Með því að nota ReFlow sparast mikið af vatni sem skiptir máli þegar vatn er af skornum skammti.

Hvers vegna skiptir máli að geta nýtt vatnið eins og þið gerið?

„Það er svo áríðandi, ekki síst nú á tímum kórónuveirunnar, að vera opin fyrir nýjum leiðum. Dagurinn í dag býður upp á margar nýjar dyr því það er nú alveg á hreinu að margar gamlar eru lokaðar. Því fyrr sem við finnum nýjar dyr og opnum tækifærin bak við þær því betur erum við sett,“ segir hann.

Fyrir hverja er þessi vaskur?

„Fyrir alla sem fara á klósettið og þvo sér um hendurnar,“ segir hún og hlær og bætir við: „Og fyrir alla sem vilja breyta heiminum.“

Nú þarf hönnun og útlit að fara saman, var ekkert erfitt að sameina það?

„Það er ekkert erfitt og má líta út hvernig sem þú vilt svo sem. Við erum að vinna með nýjungar og hugmyndafræði og tækni. Hún getur verið alls konar.“

Hvernig er hönnunarheimurinn að breytast?

„Við berum meiri ábyrgð en áður að vera frjó og finna nýjar lausnir. Það er nú næstum öruggt að heimurinn mun aldrei verða aftur eins og hann var og við vonum að það sé til góða. Hönnuðir bera ábyrgð á að kynna sér nýjungar og nota þær. Einnig er áríðandi að hönnuðir og arkitektar átti sig á þeirri ábyrgð að oft er verið að byggja á óbyggðum slóðum og þá ríður á að eyðileggingin sé gerð til að setja eitthvað fallegt í staðinn,“ segir hún.

Eru Íslendingar komnir nægilega langt að hugsa á þessum nótum?

„Ég bara veit það ekki. Við búum að þeim náttúruauðlindum eins og með vatnið sem við, eins og staðan er í dag, eigum nóg af. En það þarf ekki að vera endalaust. Ég fann áþreifanlega fyrir því þegar ég flutti frá Íslandi til Los Angeles, að vatn eru lífsgæði. Hvað varðar Íslendinga og hönnun þá eigum við margt sem við getum verið stolt af,“ segir Tryggvi.

HÉR getur þú lesið blaðið í heild sinni. 

Hinrik Gunnarsson og Herdís Hallmarsdóttir prýða forsíðu blaðsins.
Hinrik Gunnarsson og Herdís Hallmarsdóttir prýða forsíðu blaðsins.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál