Björk hannaði einstakan moltuleikvöll

Björk Gunnbjörnsdóttir hönnuður útskrifaðist frá Konstfack-listaháskólanum í Svíþjóð 2020. Lokaverkefnið hennar var moltuleikvöllur þar sem börn og fullorðnir koma saman í leik og moltugerð. Hún hefur mikinn áhuga á umhverfismálum og skógrækt. Hún hefur starfað sem hönnuður, ljósmyndari, við tölvuvinnu og kennslu. Í dag stundar hún nám við Listaháskólann í listkennslu og kennir hressum krökkum hönnun og smíði meðfram því.

„Á sumrin hef ég verið að vinna við skógrækt. Það er eitt það skemmtilegasta sem ég geri. Bara að vera inni í skógi að kvista, grisja og snyrta til. Það finnst mér best.“

„Þá var allt bullandi í kórónuveirufaraldri“

Björk útskrifaðist frá Konstfack-listaháskólanum í Svíþjóð vorið 2020. „Þá var allt bullandi í kórónuveirufaraldrinum svo lokasýningunni var slaufað og ekkert fór eins og var búið að gera ráð fyrir. Meistaraverkefnið mitt fjallaði um að gera jarðgerð skemmtilega og áhugaverða og skapa samvinnuverkefni milli kynslóða. Ég fór að skoða leiðir til þess að búa til moltu á skemmtilegan hátt og bara fá fólk til þess að kynnast jarðgerð. Ég hitti auðvitað marga sem eru miklu fróðari en ég um jarðgerð og fékk líka ráðleggingar frá manni sem sérhæfir sig í byggingu á alls konar vélum þar sem mig langaði að gera einhvers konar mannknúna lágtæknivél. Niðurstaðan var að gera moltuleikvöll þar sem börn og fullorðnir koma saman í leik og moltugerð. Markmiðið var ekki að búa til moltu á sem einfaldastan, snyrtilegastan né fljótlegastan máta, enda gerir flækjustigið það skemmtilegra. Svona til samanburðar, ef þú lætur kúlur renna eftir langri kúlubraut þar sem þær enda ofan í kassa eða tínir þær beint í kassann, hvort er skemmtilegra?“

Það er áhugavert að heyra hvernig ferlið fer fram í moltugerðinni.

„Leikvöllurinn virkar þannig að fólk malar matarafgangana sína, skýtur þeim í moltutunnuna og tunnunni er snúið með því að leika sér í hringekju sem er tengd við tunnuna. Síðan væri moltan auðvitað notuð af öllum sem vilja til að næra jarðveginn og rækta eitthvað. Hugmyndin var líka að nota hitann frá moltunni til að hita vatn og nota til ræktunar, það fór ekki í framkvæmd. Allavega ekki ennþá. Þessi útskýring er kannski smá einföldun og lokaútkoman var auðvitað bara einn möguleiki af mörgum. Ég sé alveg fyrir mér aðrar útfærslur á stærri skala einhvern tímann.“

Fullorðnir læra oft mikið af börnum

Ertu mikil garðakona sjálf?

„Það fer alveg eftir skilgreiningunni. Mér finnst rosalega gaman að rækta. Sérstaklega bara til að prófa og sjá hvort það heppnist en ég nenni ekkert endilega að gera grasið í garðinum rennislétt og grænt. Maðurinn minn er meira þar. Mér finnst skemmtilegast að rækta eitthvað sem er hægt að nýta í matargerð eða í einhverja sköpun. Aðallega er mér annt um lífríkið. Mig langar að geta ræktað mér og mínum til matar og bara lifa í sátt og samlífi við náttúruna.

Það er svo mikil snilld að tengja þetta leiktækjum fyrir börnin.“

Sem hönnuður í heimi þar sem nóg er til af öllu telur Björk mikilvægt að leita lausna.

„Það er mikil ofgnótt og sóun í samfélaginu og því þarf maður að leita lausna. Eða í það minnsta að vekja umræðu. En mig langaði að nálgast þessa neikvæðu og oftast óyfirstíganlegu umræðu á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Ég hef mikinn áhuga á lágtæknivélum og alls konar flækjustigum. Að gera einfalda hluti flóknari. Á undan þessu hafði ég gert litla metangasvél sem gekk fyrir bananahýði, sem var kannski kveikjan að þessu. Að tengja jarðgerð við leik er ein leið til að kveikja áhugann og sá fræjum. Oft læra fullorðnir svo mikið af börnunum sínum og leikvöllurinn finnst mér vera svo kjörið tækifæri til að virkja fullorðna fólkið, sem oft er bara áhorfendur á leikvellinum. Þetta skapar líka samtal. Það vita ekkert allir hvers vegna jarðvegurinn er mikilvægur og að næringarefni grænmetis séu sem dæmi mismunandi eftir gæðum jarðvegs.“

Mikið magn sem fer til spillis

Í framtíðinni langar Björk mest að búa uppi í sveit og stunda einhvers konar sjálfsþurftarbúskap og skógrækt.

„Ég hef líka mikla þörf fyrir að skapa, smíða og miðla þekkingu. Ég mun örugglega finna leið til að blanda þessu öllu saman.“

Er hægt að kaupa moltuleiktækið einhvers staðar?

„Nei. Þetta var bara ein frumgerð sem varð eftir í Stokkhólmi og þetta var svo sem alltaf hugsað til að nota í almannarými. Þar sem ekkert varð úr lokasýningunni hjá Konstfack, sem er mjög stór árlegur viðburður í Stokkhólmi, endaði ég á að sýna hluta af leikvellinum í miðbæ Stokkhólms. Ég gerði svo myndband sem lifir áfram. En hver veit, kannski er einhver leiktækjaframleiðandi þarna úti sem er til í einhvers konar samvinnu og samstarf í framtíðinni. Fyrir komandi kynslóðir. Ég skora bara hér með á borg og bæjarfélög að gera íbúum auðveldara fyrir að jarðgera lífrænan úrgang. Helst að sem flestir taki þátt í því sjálfir því þá fyrst fer fólk að átta sig á magninu sem fer til spillis.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál