Eggert Jóhannsson feldskeri var heiðraður af Iðnaðarmannafélagi Reykjavíkur. Mikið húllumhæ var í Ráðhúsi Reykjavíkur af tilefni þess. Eggert er löngu þekktur fyrir sína fallegu pelsa, mokkakápur, loðhúfur og keipi.
Verðlaunin eru veitt þeim iðnaðarmanni sem hefur með verkum sínum vakið athygli fyrir framúrskarandi vinnubrögð og nýjungar sem aukið hafa hróður greinarinnar, bæði heima og erlendis.